Thursday, August 09, 2007

Skammastu þín, Reykjavíkurborg!!!!!!!

Ég á ekki orð. Ég er búin að vera að hlusta á fréttirnar í sjónvarpinu og þar var verið að greina frá því að enn á að rífa hús við Laugarveginn! Það finnst mér alger óhæfa. Það er ekki eins og við séum að drukna úr menningarminjum, né stórbrotnum húsum. Þess í stað eigum við þessa stórskemmtilegu götu sem er einmitt sjarmerandi vegna gömlu húsanna sem hana prýða. Það á að fara að rífa tvö elstu húsin við Laugarveginn. Ég skal alveg viðurkenna að þau eru ekki augnaprýði eins og þau líta út í dag, en mér finnst að þeim væri meiri sómi sýndur ef Reykjavíkurborg gerði þau upp eða kæmi þeim í gott horf og leigði síðan út fyrir þjónustu. En að rífa þau finnst mér alveg út í hött. Það Á EKKI að vera á dagskrá Borgarinnar að byggja háhýsis-druslur við þessa sjarmerandi götu. Kæra Borg, sýndu nú hugrekki og dugnað og bjargaðu nú Laugarveginum og þar af leiðandi hjarta Borgarinnar í leiðinni!

Ein voða leið og reið.