Monday, February 22, 2010

The Return of the Jedi

eða eitthvað þannig.

Hef ekki bloggað í ansi langan tíma. Finnst lífið eitthvað hafa tekið stjórnina og þar af leiðandi ekki alveg vitað hvað ég ætti að segja. En núna....?

Flutt út til Hollands aftur, eignaðist litla sólargeislann minn í ágúst og er allt í einu orðin afskaplega fullorðin (þar af leiðandi fyrirmynd og þarf því að hugsa hvað ég segi og geri)

Mér líkar þetta nýja starf mitt og tek það alvarlega og hef sett mér það takmark að skila því af mér vel-strau-andi og kunnandi á eldavél og þvottavél og einnig vel hlaðið góðum gildum og virðingu fyrir fólki og umhverfi sínu.

Vona að það heppnist og hann hafi samt góðan húmor. ;Þ

Monday, September 08, 2008

Og...

Jamm.
Allir að skella sér á óperuna þetta haustið. Cavalleria Rusticana og Pagliacci, báðar afar fallegar óperur. Tilvalin ástæða að skella sér og skemmta sér vel.

Jazzhátíð var áhugaverð í ár. Við Andrés fórum á nokkra tónleika. Bestir þóttu mér lokatónleikarnir með mega bandoneon leikara Olivier Manoury – latín jazz funk kvartet.
Það var mikið stuð.

Svo það sem er á spilaranum þessa dagana, Roisin Murphy - Overpowered og Vanessa Paradis - Divinidylle. Báðir þrusugóðir, mæli með þeim.

Hvað eruð þið að hlusta á og hverju mælið þið með???

Thursday, July 24, 2008

Bréf til Hetju

Ég vildi bara þakka þér fyrir gærkvöldið. Það var yndislegt að ná þér á góðum tíma og fá einnig þessi fallegu orð frá þér. Ég vona að tíminn þinn heima hafi verið ánægjulegur hingað til og við skulum óska þess að hann verði einhvern tíma í viðbót.
Mín vakt er búin í bili, Þóra og Númi munu verða hjá ykkur þangað til ég kem aftur. Og ég hlakka til þess að koma aftur, fá minn skammt af knúsi og útúrsnúningum og gríni.
Þú stendur þig vel og vonandi náum við að halda í við þig og stýra þér sársaukalítið inn í næstu daga.

Þín elskandi dóttir,
Helga

Wednesday, July 16, 2008

Bréf til Hetju

Í dag var frábær dagur. Það létti okkur öllum lund að sjá að þrátt fyrir slæmar fréttir þá varst þú ekki alveg tilbúinn að eyða góðu orkunni í leiðindi. Það eru alltaf góðar fréttir þegar þú ert í stuði til þess að snúa út úr og skjóta á okkur hin og þó svo að orðaforðinn sé ekki alveg bestur þá tekst þér enn að skjóta í mark....
Heimkoman verður vonandi eins og þig hefur dreymt um og við óskum þess öll að þú getir verið heima eins lengi og hægt er. Óli er búinn að gera aðgengið eins og best verður á kosið og verið er að klára restina svo að þetta verði allt þægilegt.

kv. Helga

Saturday, July 12, 2008

Bréf til Hetju

Í dag er stór dagur. Hamingjan fólgin í því að ná að ganga án hjálpar í smá stund er ómetanleg. Eitthvað sem hefur ekki verið hægt í svo langan tíma.
Takmarkið sem er sett er að komast út (af spítalanum á morgun, í raun kannski á þriðjudag-miðvikudag). Og að fara í útilegu..... Já, útilegu.

Já það yrði sigur að fá hann heim, það er satt. Hann er orðinn drullu þreyttur á því að vera þarna fastur inni, sérstaklega þegar það er svona gott veður. Það fer vonandi að leysast.

Á morgun á ég von á því að það verði ennþá stærri dagur. Kannski liggur hann í því að það er orka fram yfir kl 3 eða betri svörun í hægri hlið. Ég bið ekki um meira.

Monday, February 04, 2008

Í skýjunum

Þessa dagana hef ég verið í skýjunum. Ekki í flugvél, eða jú reyndar, en að gera það sem mér finnst skemmtilegast. Að spila.

Ég hef verið það ofsalega heppin að Sinfó hefur átt auðvelt með það að finna símanúmerið mitt og hringja í mig til að hlaupa í skarðið. Það er búið að vera rosa gaman og skemmtileg vinna.
Og núna síðast fékk ég að fara með þeim í tónleikaferð til Ísafjarðar. Það var allt skemmtilegt við þá ferð nema íslenska handboltalandsliðið. Hmmm.

Og svo fann Íslenska Óperan símanúmerið mitt líka sem þýðir að ég er að spila með í La Traviata uppfærslunni. Sem að þið verðið öll að fara að sjá, mjög fín uppfærsla og alveg helv..... góður klarinettleikur haha.

En núna er ég í smá vetrarfríi, tveir dagar. Júhú. Leitt samt að Andrés er ekki heima akkurat núna. Hann er að vinna í Rotterdam. Við Birta dúllum okkur bara saman, gellurnar. Það verður samt gaman að fá hann heim aftur. Kannski við finnum einhvern tíma í feb til þess að fara út að borða til þess að halda upp á allt saman, afmæli í fleirtölu og vinnusigra!!

Wednesday, November 28, 2007

New York, New York

Ég fann það síðasta haustið 2006, að það er alveg nauðsynlegt að hafa eitthvað til þess að hlakka til. Einhverja stóra gulrót til þess að hugsa til þegar manni finnst eins og erfiður dagur ætli aldrei að enda.
Haustið 2006 pöntuðum við ferðina til Hong Kong og eftirvæntingin fleytti manni áfram á bleiku skýi fram að brottför. Upplifunin af ferðinni gerði veturinn og vorið einnig yndislegt.

Ég fann í haust að ég saknaði þessa æsings alls. Var meir að segja farin að tékka hvort að maður gæti ekki bara stokkið eitthvað í burtu núna um jólin. En ég vil gjarnan eyða þessum jólum á Fróni, þetta sinnið, útiloka ekki að einhvern tíman í framtíðinni verði maður á suðurhveli eða að rölta Kínamúrinn á Jóladag.
Þannig að þegar ég fékk gjöf um daginn, ferð til New York, þá lifnaði sko aldeilis yfir hjarta mínu.
Við fórum síðast til New York í brúðkaupsferðina og sú ferð var yndisleg! Mér finnst þessi borg himnesk og væri alveg til í að hanga þarna sem mest.
Í þetta skiptið ætlum við að vera í viku, heila viku!