Monday, September 08, 2008

Og...

Jamm.
Allir að skella sér á óperuna þetta haustið. Cavalleria Rusticana og Pagliacci, báðar afar fallegar óperur. Tilvalin ástæða að skella sér og skemmta sér vel.

Jazzhátíð var áhugaverð í ár. Við Andrés fórum á nokkra tónleika. Bestir þóttu mér lokatónleikarnir með mega bandoneon leikara Olivier Manoury – latín jazz funk kvartet.
Það var mikið stuð.

Svo það sem er á spilaranum þessa dagana, Roisin Murphy - Overpowered og Vanessa Paradis - Divinidylle. Báðir þrusugóðir, mæli með þeim.

Hvað eruð þið að hlusta á og hverju mælið þið með???

2 Comments:

At 1:56 PM, Anonymous Anonymous said...

Nýjasti diskurinn í safninu heitir metro með þýsku jazz/swing/pop bandi sem heitir jazzophrenic, http://www.jazzophrenic.de.
Þeir verið að spila í Waldwirtschaft, (http://www.waldwirtschaft.de), bjórgarðinum í allt sumar. Þar sitja þeir svartir af bjórdrykkju og spila fram á kvöld þegar veður leyfir.

 
At 3:31 PM, Blogger Fjóla Dögg said...

Frábært takk. Mig vantar einmitt svo nýja tónlist.

 

Post a Comment

<< Home