Tuesday, September 13, 2005

VIÐ ERUM LOKSINS GIFT!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Ég er að springa úr hamingju þessa dagana. Er búin að ganga um með Sólheimaglott frá því á laugardaginn...

Ég vil bara þakka öllum fyrir okkur, fyrir allar kveðjurnar sem við fengum og sendingarnar og svo sérstaklega samveruna á brúðkaupsdaginn.


Og svo til ykkar sem eruð ekki búin að láta pússa ykkur saman, endilega drífið í því, því þetta er svo asskoti skemmtilegt.

Thursday, September 01, 2005

Sorry að ég hef ekkert bloggað nýlega. Búin að vera soldið busy og ef ég hef gert eitthvað þá hefur það verið fyrir brúðkaupið. Þetta er svaka mál að plana svona viðburð, en voða gaman líka. Vinkonur mínar stálu mér í hádeginu á laugardaginn og gæsuðu mig eftirminnilega. Það var rosalega gaman, næstum því það gaman að það væri þess virði að gifta sig aftur.....ég ætla alla vega að skella mér í fleiri flugtíma eftir þetta.

En ég verð nú bara að segja, að ég hlakka rooosalega til þess að fara að gifta mig, og ég vona að veislan verði líka miiiikið og gott djamm.