Sunday, June 10, 2007

jæja, sumarfríið byrjar vel :( Búin að liggja í rúminu síðan á mánudagskvöld og er að verða klikkuð á þessu!! Hlakka til þess að fara að komast á fætur og henda mér í garðvinnu.
Vesalings garðurinn minn(okkar....kræst, geri þetta alltaf) hefur verið vanhirtur í nokkur ár, þannig að við þurfum að vera dugleg í garðyrkjunni í sumar. Við fengum óvænt þrjár litlar furur að gjöf, við vitum ekki frá hverjum né hvað við eigum að gera við þær. Við ætluðum ekki að setja niður neinar furur í garðinn, en lítur út fyrir að það gæti eitthvað breyst.
Svo verða fleiri framkvæmdir í sumar, húsið verður málað og við ætlum líka að bera á pallinn. Þar sem ég er heimavinnandi í sumar, verð ég að vera aktíf....:Þ
Sem betur fer lítur út fyrir það að húsið verði málað í smekklegur gráum lit, til að kontrasta hvíta geisikassann, þannig að ég geri ráð fyrir því að þetta verði auðveldara mál heldur en þegar við máluðum Háabergið, sem var málað hvítt. En þar sem húsið er hraunað verður þetta MÁL!! En gaman þegar maður er búinn að leggja svona mikla vinnu í að gera heimili sitt fallegt.

En fyrst...verð ég að koma mér á fætur!!