Tuesday, July 26, 2005

Mikið ætlar þetta blessaða sumar að verða geðveikt! Það er búið að vera gott veður, búið að fara í góðar ferðir og svo núna síðast var að bætast enn ein rósin í hnappagat þessa góða sumars. Maðurinn minn er að verða þrítugur á fimmtudaginn. Til hamingju með það ástin mín!!! En foreldrar hans og systkini voru það sniðug að gefa honum SVEPP í afmælisgjöf. SVEPPUR er, fyrir ykkur sem ekki vitið, er úti hitatæki til þess að hafa á pöllum og öðrum svipuðum svæðum. Við erum búin að prufa hann, ekki mikið meira. Gerum samt fastlega ráð fyrir því að þetta lengi sumarið okkar um helling, því það kemur mikill hiti frá þessu. Aðfangadagskvöld, algjör óþarfi að borða inni, bara skella steikinni út á pall og borða þar undir SVEPPNUM. Og já, líka í partýum, þá verður sko óþarfi að skjálfa við að smuga á sígarettunum.....ónei, þá verður bara yljað sér undir SVEPPNUM, il sveppó!

Þangað til næst.....ætla ég að halda til úti á palli.

2 Comments:

At 8:47 AM, Anonymous Anonymous said...

Blessuð elsku gamla vinkona.
Gaman að kíkja á síðuna þína. Við verðum endilega að fara að fara að hittast bráðlega.
Og til hamingju með afmælið Andrés.
kveðja, Halla Dóra

 
At 5:53 PM, Anonymous Anonymous said...

Vá mér finnst ég baraverða að kommenta núna sko ég var með Höllu Dóru og Helgu í 7 ára bekk. Gaman gaman.
Fjóla

 

Post a Comment

<< Home