Monday, February 26, 2007

17 dagar

Jamm, þetta styttist. Það er lítið hugsað um aðra hluti en það sem viðkemur húsinu. Í hvert skipti sem við keyrum framhjá búð er snarhemlað og hlaupið inn og stolið nokkrum pappakössum. Það er líka búið að sanka að sér öllum litakortum frá öllum málningarfyrirtækjum landsins, hvaða litur á að vera í stofunni, svefnherberginu, herbergjunum niðri...aaaaaa. Svo eigum við ekki nóg af húsgögnum í allt þetta pláss, það vantar sófa og eldhúsborð og...... Jamm, ef þið rekist á mig eitthvað á næstunni og ég tala ekki um neitt annað við ykkur, þá biðst ég hér með fyrirgefningar. Ég skal bæta ykkur það upp síðar með ferð í pottinn!!!!!


Þetta herbergi erum við ekki alveg viss um hvort við eigum að mála eða hafa bara svona!!?!??!?!?!?!?!?!

5 Comments:

At 9:53 PM, Anonymous Anonymous said...

Ha ha þetta er náttla BARA flott málað sko....hmm.
En en og aftur innilega til hamingju með slottið elskurnar. Hlakka til að koma í pottapartý,
Elísabet Kínaferðafélagi

 
At 11:23 PM, Anonymous Anonymous said...

He he he ..... já það er alveg spurning um að hafa það bara svona....... ótrúlega skemmtilega málað ha ha ha ha ha ha :-)

 
At 11:30 PM, Anonymous Anonymous said...

Geðveikt pæjuherbergi! Myndi samt skipta um gardínur!
Kerla

 
At 10:50 AM, Blogger Helga'Netta said...

Já ég held að nýjar gardínur sé málið!!?!??!?!:/

 
At 12:43 PM, Anonymous Anonymous said...

Við erum að spá í að fá Ásgeir Kolbeins til að gefa álit sitt á þessu. hahaha....
Andrés

 

Post a Comment

<< Home