Sunday, October 17, 2004

Iceland Airwaves here we come!!!

Erum búin að festa okkur "armband" á Iceland Airwaves. Ætlum okkur að sökkva okkur í hámenningu íslenskrar tónlistar og einnig að ljá einhverjum erlendum listamönnum eyru okkar. Þar á meðal KEANE.

Ég er bara búin að vera viðþolslaus, gat ekki hugsað um neitt annað en að ég ÆTLAÐI EKKI að missa af þessum tónleikum. Var því ekki lengi að drusla mér inn í Kringlu í dag, til þess að freista þess að þeir ættu ennþá miða á viðburðinn mikla. Og viti menn, jahahá. Skellti þessu á kreditkortið ásamt einu pari af skóm, og var bara verulega sátt við það og skóna. Þeir fengust reyndar ekki í Skífunni eins og "armböndin" á hátíðina, heldur í annarri búð......

Ég er búin að vera að skoða hvaða listamenn eru að koma fram á hátíðinni og er að vinna í því að ákveða á hvað maður ætlar(Ske, Kimono og Leaves), þar sem maður er með inngöngu inn á alla tónleika. Hafið þið þarna úti einhverjar tillögur??? Endilega sendið mér ábendingar í Comments.

1 Comments:

At 7:04 PM, Blogger Helga'Netta said...

Takk fyrir ábendinguna og wish you were coming with us, því það er alltaf jafn gaman að fara með þér á tónlistarhátíðir!

 

Post a Comment

<< Home