Fyrsta hlaupið búið!!!!!!
Jamm maður er nú bara orsalega stoltur, það verð ég nú bara að segja.
Við Andrés skelltum okkur bara í Víðavangshlaup ÍR á sumardaginn fyrsta. Hlaupnir voru 5km í kring um Tjörnina í Reykjavík í þessu líka fína veðri. Hlaupið var hraðara en ég á að venjast með 5km mína, þannig að þetta var nokkuð erfitt en varð líka til þess að ég bætti persónulegt með mitt um mínútu :)
Hér eru svo myndir að mér og Andrési.
3 Comments:
Þetta var voðalega gaman, ég benti Helgu á þetta hlaup og var svo sjálfur dreginn inn í það. Mæli með því að fólk fari að hlaupa, þá getur maður drukkið bjór með góðri samvisku :-)
Kveðja,Andrés
p.s. Þið væntanlega takið eftir því að Helga fékk að velja sér keppnisnúmerið... ha ha ha ha...
Ja, hérna hér! Mikið ofboðslega eruð þið dugleg..... Gott hjá ykkur og það væri nú ekki verra ef það væri hlaupið framhjá Krókahrauninu við tækifæri ;)
það vantaði endann...
bestu kveðjur,
Halla Dóra
Post a Comment
<< Home