Monday, February 13, 2006

'Tis the (júróvisjón)season to be jolly - falalalalaaaa

Jahahá. Júróvisjón árstíðin er gegnin í garð.

Ég er búin að vera að fylgjast með íslensku undankeppninni af miklum áhuga. Ég er það heppin að eiga mjög góða vini sem eru á sömu júróvisjónbylgju og ég og hafa verið að halda MEGA júróvisjón partý síðan undankeppnin hófst. Ég hef nú ekki orðið neitt rosalega imponeruð af lögunum sem taka þátt í ár, en mér finnst þetta framtak RUV vera til fyrirmyndar. Svona á þetta alltaf að vera, ekki satt?
Eins og ég sagði áðan, finnast mér lögin í ár ekkert vera neitt til að hrópa húrra fyrir. Er meir'að segja ekkert að fíla lagið hennar Silvíu, já og er líka búin að vera að standa í stappi við fólk sem finnst ég bara vera rugluð að vera ekki slefandi yfir því. Ég hef kannski verið að horfa svolítið gagnrýnum augum á keppnina í ár, hjartasár mín varðandi framlag okkar í keppninni í fyrra eru ekki gróin, við áttum að vinna, búhúhú. Verandi enn svona Selmu-dofin, er mér nokk sama hvaða lag fer fyrir okkar hönd (svo lengi sem það sé ekki Sæma rokk lagið, lagið með rappinu eða Ómar)þið megið alveg bæta við hér af vild, hvaða lög eiga ekki að fara.

En svo finnst mér partur af gleiðinni núna vera að fylgjast með andstæðingunum. Hlusta á lögin þeirra og sannfærast um að það eru ekki bara við sem erum óborganlega hallærisleg. Þetta er allt saman á netinu. Official Síðan. ESC

Ég hvet alla, unga sem aldna, til að verða sér út um gott eintak af júróvisjón-vírusnum og verða vel sýktir. Það gleður sálina því...."þú leggur ekki inní Gleðbankann tóman blúhúúús"

3 Comments:

At 7:15 PM, Anonymous Anonymous said...

ehmm verður þá júró partí hjá ykkur á laugardaginn?!!!!

Maður er bara ekki búinn að hafa sig í að þakka fyrir síðasta partí, sem btw var frábært - takktakk fyrir okkur, þegar maður fer að reyna að sníkja það næsta...

Gæti trúað að þið séuð bókuð í e-ð ofur júró partí en ef ekki þá endilega hafið samband því við getum ekki hugsað okkur betri félagsskap þetta kvöld, gætum þá meiraðsegja látið verða af því að bjóða ykkur loksins í höllina okkar.

Kv. Erla Björk.

 
At 7:09 PM, Blogger Helga'Netta said...

Því miður verður ekki Júróvisjón partý á laugardag, þar sem við hjónin ætlum að vera að Júróvisjónast með Samskipum, eins og þau leggja sig. Því miður því miður. Eeeen örugglega seinna........

 
At 11:53 PM, Anonymous Anonymous said...

Farðu að blogga Helga!!!

 

Post a Comment

<< Home